Saturday, December 10, 2011
Thursday, December 8, 2011
Huggulegheit og huggulegust
©Halldóra Kristín Bjarnadóttir
Byrjaði daginn á notalegheitum á litlu kaffihúsi á Laugaveginum með Þóreyju, systur mömmu. Síðan voru gersemar búðanna skoðaðar og síðustu jólagjafirnar keyptar. Svo margt fallegt að sjá og auðvelt að gleyma sér. Í hádeginu settumst við niður á Happ. Huggulegheit og huggulegust.
Í augnablikinu var ég að kveikja á uppáhalds jólakertinu mínu og stefnan að skrifa nokkur jólakort, skella þeim í póst fyrir vinnu í kvöld. Jólaleynivinaleikur í gangi í vinnunni, möguleiki á að þar bíði mín eitthvað snoturt. Speeeeennnneeeeendeeee. Annars krossa ég bara fingur fyrir því að finna far norður á mánudaginn næsta, helst. Get ekki beðið eftir því að komast heim í sæluna.
Hafið það notalegt í dag.
p.s. Arnar hringurinn í Rokk og rósum var búinn, sennilega, eins og mig grunaði var mér aldrei ætlað að fá þennan örn. Gleymum'essu.
p.s.s. Ef ykkur langar í þennan feld þá kostar hann um 210.000 krónur, fínn í jólapakkann;) ;*
Wednesday, December 7, 2011
Minning á mynd
Ljósmyndir eru mér ómetanlegar. Þær geta fangað dýrmætar stundir, varðveitt minningar. Efsta myndin er í miklu uppáhaldi hjá mér. Hún er tekin um hánótt.
Litla krílið ég gat ekki sofið, vildi ekki sofa og því voru allir vakandi. Eftir að ég hafði grenjað úr mér augun var spilað fram eftir morgni ;) Ég er svo yndislega sátt með mig á myndinni enda umvafin stórum hluta af uppáhalds fólkinu mínu.
Seinni myndin er einfaldlega svo einlæg, hún hefur alltaf verið í uppáhaldi. Þannig er það bara og verður alltaf! ;) Sama gildir um þá seinni, uppáhalds. Varðveitir minningu um hlutföll og stundir sem seint verða toppaðar.
Síðasta myndin. Fjölskylda mín á fermingardaginn minn. Uppáhalds. Ég sennilega nálægt toppnum á fullkomnu-áráttu-tímabilinu mínu.. Á þeim tíma fannst mér þessi mynd langt frá því að teljast fullkomin. Í dag er hún mér dýrmæt. Get enn lesið hugsanir mínar í gegnum svipinn á mér á henni.
Gæti deilt gömlum myndum með ykkur endalaust, og á eflaust eftir að halda áfram að færa þær í léttari búning og skella inn öðru hverju. Fá mig til að líða vel.
Part of the reason why I love photos so much - they capture good moments and make nice memories last longer. When you go through old photos they often make you feel better. One moment you may feel like you are 2years old again, playing card with you family, being able to control everything but after just few seconds when you see a new photo you feel like you are teenager again, fooling around with your best friend. Priceless.
Hallgrímskirkja um miðnætti
©Halldóra Kristín Bjarnadóttir
Ég hef verið að
vinna á fullu síðustu daga. Þess á milli hef ég haft það notalegt. Í gær
heimsótti ég Auði mína og við litum við hjá vinkonu okkar sem átti afmæli. Um
miðnætti kom yfir mig miðnætur-flipp-fílingur sem flestir sem þekkja mig kannast við. Áður en
Auður vissi af hafði ég lagt hjá Hallgrímskirkju, enda með eindæmum fallegt veður
og hún smitast af gleðinni. Hoppandi og skoppandi smellti ég myndum af Auði og
fallegu birtunni sem umlukti svæðið. Aðventan er yndisleg.
Kvöldið í kvöld
var ekki síðra. Ljúffengri pizzu svelgt niður með malt&appelsíni, ítalskur
karamellu ís og moijto ís í eftirrétt með snotru stúlkuna mína, Soffíu til
samlætis. Jólakortagerð og jólatónlist, Justin Bieber google, hlátur og
undarlegur húmor. Aðventan er notaleg.
Pictures taken at midnight of the main church in Reykjavík, Hallgrímskirkja.
Tuesday, December 6, 2011
Fyrstu jólin mín
Ég er allgjört jólabarn, frá toppi til táar. Elska aðventuna. Notalegheitin, margfaldar ástæður fyrir notalegheitum. Allstaðar. Á meðan ég man þá er orðið ,,notalegheit" að verða eitt af mínum uppáhalds orðum þessa dagana. Notalegt!
My first Christmas <3
Good night, finally I'm thinking about going to bed. .. . .
Subscribe to:
Posts (Atom)






















