©Halldóra Kristín Bjarnadóttir
Ég ákvað að búa til hálsfesti í skartgripagerðinni í lokin. Upphaflega held ég að ég hafi fengið innblástur frá vorinu og ákveðið því að vinna með fugla og tré en niðurstaðan varð mun haustlegri. Ég steypti mót af hverri grein og bræddi kopar sem ég helti ofan í það. Þetta tók talsverðan tíma en mesta málið reyndist þó vera að festa þær saman. Gæti skrifað bók um það ferli. Ég hafði þó virkilega gaman af því að gera þetta og bjó svo til tvo krútt fugla úr keramiki sem ég brendi og skellti á hálsfestina – einn sprækan fugl og eina litla fitubollu. Ég er nokkuð ánægð með niðurstöðuna og hrifin af dökkri áferð greinanna sem ég fékk þegar ég hitaði þér í síðasta skiptið - bjartir fuglarnir að fljúga burt.
Annars var ég að enda við að hlamma mér á ferðatöskuna mína, renna henni og þrífa - herbergið sem ég hef búið í með dönsku snótunum mínum síðustu mánuði, í síðasta skiptið. Undarlegt. Veðrið er æði í dag og ég ætla að skella mér á ,,Prom” í kvöld. Heyrumst:*



























