Thursday, January 27, 2011

Tomorrow is Friday !

Snotri skólinn minn.
©Halldóra Kristín Bjarnadóttir

Veðrið var yndislegt í dag. Í hádegishléinu fór ég því í göngutúr um svæðið hér í Holbæk..oog tók myndavélina að sjálfsögðu með. Það sem ég er skotin í ökrum og fallegum trjám. Góð helgi framundan! Reyndar beil á tveimur sveittum rave-partýjum en Þórey systir mömmu er að koma og ég ætla að fara með henni í heimsókn til Áslaugar í Odensen. Held það verði virkilega notaleg helgi. Búðir, kaffihús og rölterí? ..vill líka svo óheppilega til að ég tók ekki mörg skópör með mér út svo tæknilega séð vantar mig skó? :)
Annars er ég ósköp þreytt í augnablikinu. Nýjasta geðveikin hjá mér er að vakna 05:30 og labba í korter ein í myrkrinu að næstu sundlaug. Fékk næstum hjartaáfall um daginn þegar ég var fersk á leiðinni og hóstandi gömul kona hjólaði framhjá mér og bauð mér góðan daginn. En þegar ég er komin á staðinn þá er þetta meira en lítið hressandi. Hvað er betra en að byrja daginn á sundi með gömlu dönsku fólki og skella sér svo í gufu fyrir skólann? Tjahh.. en guð minn góður, klukkan tifar og ég er að missa af mikilvægum svefn-mínútum.

Njótið helgarinnar krúttbangsar. Ég ætla að gera það - Godnat skat :*

Today I went for a walk. The weather was amazing. Hope you're going to enjoy your weekend people! :)Ciao :*

9 comments:

  1. Sæta sæta Danmörk!
    Mér finnst þú mjög dugleg að geta vaknað svona snemma en ég meina, hvað gerir maður ekki til þess að geta synt með gamla fólkinu? :P

    ReplyDelete
  2. Vááá! Þessar myndir þínar!!Virðist hvítara yfir þarna en á ísalandinu í augnablikinu!?Njóttu umhverfisins og ...sundsins...Amman- ekki í sundi

    ReplyDelete
  3. oooh these pictures are just so magical! =)

    http://pinkchampagnefashion.blogspot.com/

    ReplyDelete
  4. Þetta eru flottar myndir hjá þér.

    Kv.
    Pabbi :-)

    ReplyDelete
  5. Totally beautiful images! I love when its snowy, but really blue skies. So beautiful :) You look adorable! Thanks for your sweet comment, and My giveaway is finally here - check it out! Panda xo

    ReplyDelete
  6. Flottar myndir og sérstaklega mynd nr 4 hún er beautiful!

    Vaka

    ReplyDelete