Monday, January 9, 2012

Penslaför


Málaði þessar tvær myndir fyrir jól af hjörtunum mínum, afa og ömmu í Fellsmúla. Myndirnar voru málaðar eftir ljósmyndum sem ég hafði tekið af þeim og varð ég satt best að segja, ótrúlega ánægð með útkomuna.
Þess vegna ákvað ég að gefa þeim þær í jólagjöf. Nokkur tár féllu. Ómetanlegt. Ekki frá því að ég hafi lagt smá af ást minni til þeirra í penslaförin!

Í dag taka myndirnar sig vel út í bjarti stofunni í Fellsmúla. Næstum ótrúlegt hvað eina lausa veggplássið hjá gömlu mínum, smell passaði fyrir þær. Eins og þeim hafi verið ætlað að vera þar;)

Kveðja, sú sem verður alltaf svolítið væmin þegar hún hugsar heim ;)

Photo I took of the pictures I painted of my dear grandpa and grandma, before Christmas. I was pretty happy with how the turned out so I gave it to them. You could see few tears. 

4 comments:

  1. Það sem þú ert hæfileikarík!

    ReplyDelete
  2. Þær eru skilgreiningin á orðinu notalegt!
    og nýja lúkkið á síðunni er líka mjög notalegt!
    Notalegt!

    ReplyDelete